Um ARTA

Starfsemi ARTA lögmanna byggir á ríflega fimm áratuga gömlum grunni og á rætur sínar að rekja til lögmannsstofanna Lögvísis og Fulltingis. Eigendur og annað starfsfólk stofunnar hefur á þessum tíma starfað sem ráðgjafar nokkurra helstu fyrirtækja landsins, opinberra aðila og einstaklinga, auk sívaxandi fjölda erlendra viðskiptavina. Starfsmenn ARTA búa yfir víðtækri þekkingu og markvissri sérhæfingu sem nýtist þeim vel við ráðgjöf til viðskiptavina stofunnar.

Um árabil hefur ARTA sérhæft sig í lögfræðiráðgjöf til fyrirtækja í alþjóðaviðskiptum. Lögmenn stofunnar hafa aflað sér menntunar og starfsreynslu á alþjóðlegum vettvangi. Sú reynsla gerir þeim kleift að gæta hagsmuna viðskiptavina stofunnar í hvers kyns viðskiptum við erlenda aðila og ráðgjafa þeirra. Með sama hætti hefur ARTA gætt hagsmuna erlendra aðila hérlendis.

Til að sinna enn betur alþjóðlegum þörfum viðskiptavina sinna er ARTA aðili að Globalaw. Globalaw eru leiðandi samtök meðalstórra lögmannsstofa sem sérhæfa sig í fyrirtækjarétti.

ARTA er jafnframt hluti af Vogel Global Competition Network, sem er sérhæft net af lögmannsstofum út um allan heim sem sérhæfa sig í samkeppnisrétti.

Þjónusta ARTA lögmanna er árlega metin af Chambers and Partners og The Legal 500.

Sími & tölvupóstur

Staðsetning

Laugavegur 182 – 105 Reykjavík

Laugavegur 182
– 105 Reykjavík