Persónuverndarstefna
ARTA lögmenn leggja ríka áherslu á vernd gagna og þagmælsku. Í persónuverndarstefnu þessari er gerð grein fyrir hvernig við varðveitum og vinnum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög”) og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga („almenna persónuverndarreglugerðin“ eða „pvrg“).
1. Ábyrgð og vinnsla
ARTA er ábyrgðaraðili þegar við ákveðum hvernig vinna skuli með tilteknar persónuupplýsingar sem okkur hafa verið veittar vegna reksturs máls eða annarra starfa okkar. Þegar okkur er falin vinnsla persónuupplýsinga fyrir hönd annarra, til dæmis vegna framkvæmdar áreiðanleikakannanna, kunnum við einnig að teljast vera vinnsluaðili. Slík vinnsla fer ávallt fram á grundvelli vinnslusamnings við ábyrgðaraðila.
2. Tegundir vinnslu og flokkar persónuupplýsinga
Við kunnum að vinna með tilteknar persónuupplýsingar í störfum okkar eins og hér greinir:
Lögfræðiráðgjöf
Sért þú viðskiptavinur eða væntanlegur viðskiptavinur vinnum við með þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til þess að geta veitt þér þjónustu svo sem nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, hjúskaparstöðu, kyn, og fjárhagsupplýsingar.
Almennt teljast upplýsingar um fyrirtæki eða rekstur þeirra ekki til persónuupplýsinga í skilningi persónuverndarlaga. Við kunnum þó í störfum fyrir fyrirtæki að vinna með upplýsingar um nöfn, kennitölur, heimilisföng og starfsheiti. Heimild til vinnslu byggir á b.lið 1. mgr. 6. gr. pvrg.
Í vissum tilfellum kunnum við að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar svo sem heilsufar og sakaferil. Heimild til vinnslu byggir á f.lið 2. mgr. 9. gr. pvrg.
Sem lögmannsstofa berum við ákveðnar skyldur samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006. Í því skyni kunnum við að vinna með persónuupplýsingar eins og nöfn, kennitölur og vegabréfsnúmer.
Markpóstur
Við kunnum að vinna með persónuupplýsingar eins og nöfn og netföng þegar við sendum viðskiptavinum okkar fréttir, upplýsingar eða markpóst. Slík vinnsla byggir á samþykki þínu sem þú getur ávallt afturkallað sbr. a. liður 1. mgr. 6. gr. pvrg.
Fótspor
Vefsíða ARTA lögmanna notar ekki fótspor / vafrakökur.
3. Afhending upplýsinga til þriðja aðila
ARTA afhendir aldrei þriðja aðila persónuupplýsingar nema þess sé þörf vegna starfa okkar og á grundvelli vinnslusamnings þar sem mælt er fyrir um ábyrgð og skyldur vinnsluaðila.
Í vissum tilvikum kunnum við að afhenda tilteknar upplýsingar svo sem til lögreglu, opinberra aðila, dómstóla eða gerðardóma og annarra lögmannsstofa. Afhending upplýsinga til þriðja aðila fer eingöngu fram ef það er nauðsynlegt til að geta veitt þér þjónustu eða á grundvelli lagafyrirmæla.
ARTA afhendir ekki persónuupplýsingar til þriðju ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins nema á grundvelli samþykkis hins skráða.
4. Öryggi
ARTA leggur ríka áherslu á öryggi gagna. Í því skyni höfum við sett okkur ferla til að tryggja öryggi persónuupplýsinga til dæmis með aðgangsstýringu í kerfum og notkun auðkenna. Hýsing gagna er í höndum vottaðra aðila og byggir á viðurkenndum tæknilausnum.
5. Geymsla og eyðing gagna
Almennt mun ARTA eyða þeim persónuupplýsingum sem ekki er nauðsynlegt að geyma vegna starfa okkar. Okkur er þó í mörgum tilvikum skylt að geyma upplýsingar í tiltekinn tíma til dæmis á grundvelli laga um peningaþvætti, laga um bókhald og laga um fyrningu.
6. Réttindi þín
Þér er ávallt heimilt að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig nema lög mæli fyrir um annað. Þú getur einnig gert athugasemdir við vinnslu upplýsinga og eftir atvikum óskað eftir leiðréttingu skráningar eða eyðingu gagna.
Beiðni um upplýsingar, leiðréttingu eða eyðingu gagna skal send á netfangið personuvernd@arta.is ásamt auðkenni svo sem skönnuðu vegabréfi eða ökuskírteini.
Þér er einnig ávallt heimilt að beina erindum til Persónuverndar sem er eftirlitsaðili með vinnslu persónuupplýsinga á Íslandi. Vefsíða Persónuverndar er www.personuvernd.is.
7. Breytingar á Persónuverndarstefnu
Persónuverndarstefna þessi sætir reglulega endurskoðun til þess að tryggt sé að hún uppfylli skyldur persónuverndarlaga og almennu persónuverndarreglugerðarinnar.